logo

Hverjir eru inni

Það er/u 1 gestur inni

Innskráning

Teljari

mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag12
mod_vvisit_counterÍ gær13
mod_vvisit_counterÞessi vika59
mod_vvisit_counterSíðasta vika111
mod_vvisit_counterÞessi mánuður129
mod_vvisit_counterSíðasti mánuður760
mod_vvisit_counterAllir dagar6442

Tengdir (20 mínútum síðan): 4
IP tala: 38.107.191.98
,
Í dag: Sep 08, 2010

Fréttir/greinar
Rokkurinn. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Sunnudagur, 25 Júlí 2010 14:36

 

Árið er 1931. Sumarið var liðið, haustverkum að ljúka.

Spunakonurnar, móðir mín og amma, búnar að taka fram spunarokka sína til bandframleiðslu. Úr því skyldi vinna klæðnað á heimilisfólkið áður en vetur gengi í garð, svo sem peisur, sokka, vettlinga og nærföt.

Þetta eru minningar Guðlaugar Einarsdóttur frá Sellátrum, frá því

þegar hún var fimm ára gömul.

En þessi mynd var tekin 28 febrúar 2010 af Guðlaugu  og nýskírðum frænda hennar, Símoni þór Gregorssyni. Þau voru þá yngsti og elsti afkomendur  Sellátra ættarinnar.  

Klikkaðu nú á lesa meira og lesum frásögn Guðlaugar.                     

 

Lesa meira...
 
Minningar Guðlaugar Einarsdóttur. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 17 Júlí 2010 17:51

 

    

Minningabrot um heimilis trúrækni á æsku heimili Guðlaugar J.A. Einarsdóttir,f.1926.á Sellátrum í Tálknafirði.

 

Lesa meira...
 
Bernskumynningar Bjarna Harðarsonar. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 14 Apríl 2010 19:14
  Þetta er afar fallegt og uppbyggilegt.  Taaaaaaakkkkkkkk kærlega.Mér finnst sellátrasíðan lofa góðu.  ég gæti laumað inn nokkrum sögum úr barnsminni mínu, en ég var þar á hverju sumri frá 1956-1962eða3.  ég varð undrandi er Gulla hennar Guju vissi ekki um dverginn við fossinn, svo ég tók mynd af honum og sendi til hennar með sögunni sem mamma guðrúnar (sem ég kallaði og kalla enn Gunnu-mömmu) sagði okkur skræki eða hreggviði sem er jú hans rétta nafn.  mér skilst að hún sé á sellátrum núna.  ég nefndi einnig páfagaukinn sem sést seinni part sumars að ég held sem suggamynd á fjallinu tálkna. hvenær árs veit ég ekki. ég spurði dadó um þetta, en hann mundi ekki hvaða árstíma þetta var en mundi efir skuggamyndinni.  heimferðarböðunin sem við utanfólk  og reyndar allir þurftu að gangast í gegnum er afar minnistæð og er ástæðan að ég hef alltaf elskað sillu meir en aðra böðunarkonur því hú var mildari á burstanum en þið hinar,  jarpur sem var síðasti hesturinn í tálknafirði og bragðgæði hans ef svo má segja, hin kringda sóley sem við hreggviður fundum og gunna mamma var svo hrifin af og hrósaði okkur í hástert fyrir og hefur ekki fundist annarsstaðar nema í fossvogsdal að ég viti, pólitíkusarfundirnir hans davíðs og ástæða þess að ég fæ mér stundum romm, sykur og heitt vatn og er fullviss um að það er gott þó það bragist frekar illa, listatímabilin þegar öll vinna var lögð niður á sellátrum þurkur eða ei þegar gunna mamma var í listastuði og maður var í andakt yfir hæfileikum hennar, váááá, þegar gunna mamma kom til mín í hornafjörð 1985eða6 fékk að gista og pantaði þyrlu til að leita að steinum og til að skoða lónsöræfinn, en hún var frekar fótafúin þá og gat lítið gengið um ófærur þannig að hún leigði sér þyrlu til að sjá sig um. TÆR SNILLD.           HVERNIG HÚN BAÐ MIG UM AÐ PAKKA ÞESSU TONNI SEM FÓR SVO VESTUR ER ÖNNUR SAGA.  Í barnsminni mínu eru gloppur margar og efalaust rangtúlkanir, enn svona er það.  ég veit til dæmis ekki hvort ég var kallaður bjarni eða baddi á sellátrum, þó ég viti að hreggviður var kallaður skrækur því honum lá svo hátt rómurinn, og þessi björgvin sigurjóns var buggi og bjössi stóri var auðvitað gunnbjörn, þessi  sem gat allt og hitti alltaf með riflinum og át selspikið bæði hrátt og satað.  oj??? , bjössi litli var auðvitað björn skákmaður kópavogs.bjarni eða baddi (á hallveigarstígnum hét ég baddi til aðgreiningar frá bjarna afa) skrifar síðar.á siðunni á að skrifa leyniorð o þ h hvernig virkar það havað á að gera?elska ykkur sellátrabörn og tel mig part af ykkur a.m.k. ,,lillebit”bjarni harðarson Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. álfhólsvegi 6 a200 kópavour
 
Upplýsingar og óskir! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
    

 

Laugardagur, 13 Mars 2010 19:25
Ólöf Ólafs & CO hafa verið að þreifa sig áfram við að setja inn efni á Sellátrasíðuna,Nú síðast nokkur orð á  linkinn Gönguleiðir. Þá er  komin viðbót á  Um okkur .Ef einhverjar villur eru, eða ef bæta má við texta, endilega látið vita og við kippum því í lag. Á  upphafssíðunni  ( sem birtist þegar kveikt er á heimasíðunni ) er svartur aflangur gluggi með ýmsum táknum, efst hægra megin, Þetta er til að setja á hljóð, þetta er ljóð og lag sem okkur fannst passa við litla Sellátrabæinn okkar, endilega reynið að spila þetta!    Nú hafa yfir 1500 heimsótt síðuna, mest 50 á einum sólarhring.
 Nú styttist í sumar og sól,Þeir sem eru að hugsa um að dvelja á Sellátrum í sumar í algerri sveitasælu, geta pantað tíma hjá Guðlaugu Björnsdóttur í síma  8622723. Muna að taka myndir og skrifa um dvölin fyrir heimasíðuna.
 

Á næstunni er meiningin að koma inn fleiri myndum  á síðuna, við óskum eftir myndum, stafrænum  og líka gömlum á pappír, Láta fylgja með upplýsingar, hvar,hver,hvenær, og kannski litla sögu með.       Við lofum að skila öllum  myndum til baka sem við fáum lánaðar til að skanna.    Í  framhaldinu er meiningin að setja inn kvikmyndir  (video). .

 

Gert 13/4- 2010.  Ólöf Ólafs.....

 

 
 
Þegar Sellátrahúsið varð gult. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 28 Ágúst 2009 20:28

Hreggviður DavíðssonUm Páskana 2008 var mér boðið til Sellátra af Benedikt syni mínum. Ég þáði boðið og dvaldi á Sellátrum alla Páskahelgina. Þá skoðaði ég ástand hússins, sem var orðið nokkuð bágborið. Sprungur í veggjum sem raki leitaði í og var farinn að mynda útfellingar á múrhúð að innanverðu. Steypustykki laus að utanverðu vegna ryðgaðs steypustyrktarjárns og sumstaðar höfðu slík stykki hreinlega dottið og járnið bert í veðrið. Gluggakarmar rennandi blautir að innanverðu og fúkkalykt ráðandi í húsinu. Þá ákvað ég að prófa ný- markaðssetta málningu frá Suður Afríku á húsið. Það sem síðustu tilraun, áður en að það yrði að klæða húsið að utan.

Þannig háttaði til að eftir Páskana var sjálfur uppfyndingamaðurinn frá Suður Afríku staddur hér á landi, og ég óð beint í hann. Fræddist um málninguna og varð ennú ákveðnari í að láta á hana reyna.
Málið var bara að ég var skít-blankur og þorði ekki að panta eitt né neitt, án þess að sjá fyrir mér borgunaröguleika. Svo kom tækifærið.

Lesa meira...
 
« ByrjaFyrra12NæstaEndir »

Síða 1 af 2

T&G - S: 696 3436 - togg@togg.biz - togg.biz

Powered by Joomla! Designed by: Free Joomla 1.5 Template, online encyclopedia. Valid XHTML and CSS.