logo

Hverjir eru inni

Það er/u 1 gestur inni

Innskráning

Teljari

mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter
mod_vvisit_counterÍ dag2
mod_vvisit_counterÍ gær38
mod_vvisit_counterÞessi vika64
mod_vvisit_counterSíðasta vika130
mod_vvisit_counterÞessi mánuður194
mod_vvisit_counterSíðasti mánuður148
mod_vvisit_counterAllir dagar556

Tengdir (20 mínútum síðan): 1
IP tala: 38.107.191.112
,
Í dag: Mar 10, 2010

Sellátrar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
 
Sellátur Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Það er mér mikil ánægja að setja niður nokkrar línur til að tilkynna um opnun heimasíðu fyrir Sellátur. Eigendur Sellátranna eru margir, 11 talsins, dreifðir um allt land. Það er því mikið hagræði að því að geta fundið nýjustu upplýsingar um það sem er að gerast á Sellátrum á einum stað. Hér getum við safnað saman því sem við teljum markvert og að eigi erindi til hópsins, með afkomendum, mága- og tengdafólki. Til er mikill fróðleikur um jörðina og væri gaman að þeir sem hafa aðgang að honum leyfi okkur öllum að njóta á þessari síðu. Ættir hafa verið raktar, saga jarðarinnar skrifuð, myndir teknar, ljóð ort, og svo mætti lengi telja.  Smátt og smátt gætum við tekið þetta saman og haft á einum stað. Svo er líka alltaf hagleiksfólk að störfum af og til við að dytta að og lagfæra, þetta væri líka gaman að vita um.

 

Það er viðeigandi að síðan sé opnuð í dag, 18. júlí 2009, á sjötugsafmæli Ólafar. Að öðru Sellátrafólki ólöstuðu á hún drýgstan þátt í því að þessi hugmynd er að verða að veruleika, ekki síst vegna þess að hún nýtur við verkið aðstoðar Hans Óla Hanssonar, sem er henni viðkomandi. Fyrir hönd annars Sellátrafólks þökkum við þeim þetta ágæta framtak. Megum við öll lengi njóta.

 

Sigurlína Davíðsdóttir

 
Get the Flash Player To see this player.

T&G - S: 696 3436 - togg@togg.biz - togg.biz

Powered by Joomla! Designed by: Free Joomla 1.5 Template, online encyclopedia. Valid XHTML and CSS.